You are currently viewing Tekjufallsstyrkir

Tekjufallsstyrkir

Tekjufallsstyrkir eru til að styðja við rekstraraðila sem hafa orðið fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um þá gilda lög 118/2020, um tekjufallsstyrki. Markmið þeirra er að viðhalda atvinnustigi og efnahagsumsvifum.

Þeir einstaklingar og lögaðilar sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi sem hófst fyrir 1. apríl 2020 og hafa orðið fyrir a.m.k. 40% tekjufalli, sem rekja má til heimsfaraldurs kórónuveiru, eiga rétt á tekjufallsstyrk úr ríkissjóði að uppfylltum ýmsum skilyrðum. Sjá einnig leiðbeiningar í flipanum “Fjárhæð tekjufallsstyrks” undir “Önnur atriði” þar sem fjallað er um nýja í rekstri.  

Stofnanir, byggðasamlög og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkis eða sveitarfélaga geta ekki sótt um tekjufallsstyrk.

Umsóknarfrestur er til 1. maí 2021.

Lesa meira