traustur samstarfsaðili

OKKAR ÞJÓNUSTA

Okkar áhersla er að veita alhliða bókhalds- og ráðgjafaþjónustu yfrir okkar viðskiptavini. Við leggjum mikið uppúr að vera með nýjustu tækni varðandi afstemmingar og erum öflug í gerð rafrænna reikninga.

Bókarinn

Sér um daglega bókun, skil á virðisaukaskatti ef við á, minnir á gjalddaga og sér um almenn samskipti við viðskiptavini.

Launafulltrúinn

Sér um útreikning launa, sendir launaseðla rafrænt, sendir bankaskilagreinar til launagreiðanda og rafrænar skilagreinar til skattayfirvalda, lífeyrissjóða og stéttarfélaga. Í byrjun nýs árs er sendur launamiði fyrra árs til skattayfirvalda.

Fjármálastjórinn

Mörg lítil og meðalstór fyrirtæki kjósa að láta okkur sjá um fjármálastjórnun. Reynslan hefur sýnt að í flestum tilvikum minnkar kostnaður vegna dráttarvaxta og annarra gjalda sem falla til þegar greitt er of seint.​

Ársreikningur / Framtal​

Ársreikningur er ekki bara fyrir skattinn. Þegar ársreikningur er tilbúinn er gott að fara yfir hann með tilliti til hvað má betur fara í rekstri félagsins.​

Áætlanagerð​

Við bjóðum uppá mjög einfalda en skilvirka leið í áætlanagerð og þannig geta viðskiptavinir okkar fylgst vel með rekstrinum.​

Fyrirtækjaráðgjöf​

Við bjóðum viðskiptavinum okkar ráðgjöf á öllum sviðum er varða fjármál fyrirtækja, fjárhagslega endurskipulagningu og skipulagningu bókhaldsmála.​

Stofnun félaga​

Gegn föstu gjaldi stofnum við félag og skráum það á vsk- og launagreiðendaskrá ef við á. Það tekur u.þ.b. eina viku frá því að gögn eru undirrituð að fá kennitölu og hefja rekstur. Við önnumst einnig sameiningu, skiptingu og slit félaga.​

Innleiðingar

Við bjóðum upp á ráðgjöf og aðstoð við innleiðingu nýrra kerfa. Aðstoðum við þarfagreiningu og val á kerfi til innleiðingar og almennra notkunarmöguleika. Það getur sparað tíma, fé og fyrirhöfn að standa rétt að kaupum á nýjum kerfum og vanda vel allan undirbúning og uppsetningu.

Erfðafjárskýrslur​

Við önnumst gerð erfðafjárskýrslna og aðstoðum erfingja við að skipta upp dánarbúum.​

HAFÐU SAMBAND

    • HRINGDU Í SÍMA

      511-2930

    • SENDU OKKUR TÖLVUPÓST

      bokhald@ibokhald.is

    • STÓRHÖFÐI 21

      Opið virka daga 09:00 - 16:00

    BÓKHALD OG ÞJÓNUSTA

    Bókhald & þjónusta ehf var stofnað árið 2001 og hefur síðan þá lagt metnað í að veita persónulega þjónustu. Félagið hefur vaxið úr einum starfsmanni í 10 og erum við til húsa við Stórhöfða 21. Metnaður okkar liggur í að veita litlum og meðalstórum rekstraraðilum alhliða bókhalds- og ráðgjafarþjónustu fyrir sanngjarnt verð.